fbpx
Menu

Spannarkerfi

Spannarkerfi þýðir að hefðbundinni önn er skipt upp í tvær spannir, spönn 1 og spönn 2. Þetta þýðir að nem­endur eru í færri áföngum á hverri spönn eða 2–3 áföngum. Áfangar eru kenndir oftar í viku heldur en áður, sjá leiðbeiningar og fyrirkomulag

 1.   Áfangi getur verið í boði bæði á spönn 1 og á spönn 2

 2.  Áfangi einungis kenndur á spönn 1

 3.  Áfangi einungis kenndur á spönn 2

 4.  Áfangi er kenndur yfir báðar spannirnar eins og áður

 

Töflubreytingar

Í upp­hafi hverrar annar eftir að opnað hefur verið fyrir stunda­töflur, geta nem­endur óskað eftir breyt­ingum á stunda­töflu í Innu. Hægt er að gera töflu­breyt­ingar fyrstu tvo dagana í upp­hafi annar og eru töflu­breyt­ingar ekki gerðar á öðrum tíma.

Töflu­breyt­ingar eru ein­göngu fyrir þá sem ekki fengu áfanga sem þeir höfðu valið í töflu, eða ef veru­legir ann­markar eru á töflum sam­kvæmt vali.  Það eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga varðandi töflu­breyt­ingar og getur valdið því að óskum um töflu­breyt­ingar er hafnað:

  •   Óskir þurfa að koma vegna stundataflna beggja spanna, þar sem ekki eru gerðar breytingar á stundatöflum milli spanna.   

  •   Ekki er hægt að óska eftir að komast í hóp sem er yfirbókaður.

  •   Ekki er hægt að óska eftir að komast í áfanga sem er í 50 – 100% árekstri við annan áfanga sem er fyrir í töflu.

 •   Það að fækka áföngum getur tafið námsframvindu á seinni önnum og seinkað útskrift.

 •   Því er alltaf best að ræða við skólastjóra eða námsráðgjafa áður en óskað er eftir að fækka áföngum.

 •   Mikilvægt er að skrá í athugasemdadálkinn þegar óskað er eftir töflubreytingum t.d. ef nemandi telur sig vera í röngum áfanga eða hafa lokið tilteknum áfanga sem eftir er að skrá inn í námsferil.

Sjá leiðbeiningar um töflubreytingar

 

Árekstrar í stundatöflum

Vegna mikils álags getur verið um árekstra að ræða í stunda­töflu nem­enda. Þegar árekstrar eru velur nem­andinn að mæta í þann tíma sem hann telur meira áríðandi, í samráði við kennara.

Kenn­arar skrá M þar sem nem­andinn mætir en F þar sem hann mætir ekki. Sjálf­virk næt­ur­vinnsla í Innu skráir síðan A (árekstur) þegar báðir kenn­arar hafa skráð og þá reiknast ekki fjar­vist á þann tíma

 

Viðtalstímar

Viðtals­tími er tími í stunda­töflu nem­anda sem lítur út eins og hver önnur kennslu­stund. Þetta er viðtals­tími umsjón­ar­kennara og til hans getur nem­andinn leitað með allt er snýr að náminu.

Hægt er að hitta á umsjón­ar­kenn­arann á þessum til­greinda tíma í stunda­töfl­unni eða senda honum tölvu­póst. Net­fang umsjón­ar­kenn­arans eru upp­hafs­stafir hans sem sjást á viðtals­tím­anum í stunda­töfl­unni að viðbættu @tskoli.is.

 

Stundatöflur og áfangaheiti

•  Útskýringar á áfangaheitum – pdf

•  Námsval og stundatöflur

 

Útskýring á stunda­töflum:

 

 

 

Uppfært 14. ágúst 2024
Áfangastjórn