fbpx
Menu

Fréttir

02. nóvember 2021

Aðalfundur NST 2021

Aðalfundur Nem­enda­sam­bands Tækni­skólans 2021 verður haldinn fimmtu­daginn 25. nóv­ember kl. 16:00 í stofu S400 á Skólavörðuholti.

Dagskrá fundarins:

  1. Afhending fundargagna.
  2. Setning aðalfundar.
  3. Formaður NST skal stýra fundinum og ritari NST skal rita fundargerð
  4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
  5. Viðburðir NST kynntir.
  6. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
  7. Lagabreytingar.
  8. Önnur mál.
  9. Slit aðalfundar.

Til­lögur til laga­breyt­inga skulu berast stjórn minnst þremur heilum dögum fyrir aðalfund (22. nóv­ember) og skulu þær aðgengi­legar félags­mönnum á vef NST síðustu tvo dagana fyrir aðalfund. Laga­breyt­ing­ar­til­laga telst samþykkt fái hún meiri­hluta greiddra atkvæða á aðalfundi. Ef engar laga­breyt­ing­ar­til­lögur koma fram, skulu lög gilda óbreytt fram að næsta aðalfundi eða aukaaðalfundi.

Til­lögur til laga­breyt­inga berist á valdi@tskoli.is

Miðstjórn Nem­enda­sam­bandsins hefur lagt til 22 breytingar á lögum sambandsins.

Hér má finna gildandi lög NST.