fbpx
Menu

Skráning veikinda nemanda inn á Innu

Skráðir aðstand­endur nem­enda yngri en 18 ára hafa aðgang að Innu og geta fylgst með verk­efnastöðu og náms­fram­vindu nem­andans. Þeir geta einnig skráð veik­indi nem­andans í gegnum Innu. Nota þarf rafræn skilríki eða Íslykil til að skrá sig inn á Innu.

 

Leiðbeiningar – Hvernig veikindatilkynning er skráð

1. Þegar for­eldri/​​aðstand­andi hefur skráð sig inn á Innu er valið Skrá veikindi á forsíðu Innu:

 

2. Veik­inda­til­kynning er skráð með því að haka við daginn sem við á, einnig er hægt að setja inn athuga­semd ef þarf. Veik­inda­til­kynning er send inn og þá kemur upp til­kynning ef skráning tókst. Ein­göngu er hægt að skrá veik­indi sam­dægurs eða einn dag fram í tímann:

3. Starfsmaður skólans þarf að samþykkja veik­inda­skrán­ingu í gegnum Innu til þess að það færist inn í viðveru­skrán­ingu nem­andans. Þegar veik­inda­skráning er staðfest þá sendist póstur á þann sem átti færsluna.

4. Þegar veik­inda­til­kynning er samþykkt þá skráist það í viðveru­skrán­ingu nem­andans með kóðanum W.

 


Nemandi, eldri en 18 ára, getur veitt aðstandanda aðgang að Innu

Skráðir aðstand­endur nem­enda yngri en 18 ára hafa aðgang að Innu og geta geta fylgst með verk­efnastöðu og náms­fram­vindu nem­andans og einnig skráð veik­indi hans. Þegar nem­andi verður 18 ára lokast hins vegar fyrir aðgang aðstand­enda í Innu. Nem­andinn getur opnað fyrir aðganginn og/​​​eða gefið samþykki fyrir því að skólinn veiti upp­lýs­ingar um sig til aðstand­enda. Nota þarf Íslykil eða rafræn skil­ríki til að skrá sig inn á Innu.

Hafi nemandi opnað fyrir aðgang aðstandenda í Innu, geta þeir áfram skráð veikindi nemandans í Innu. Ekki er þörf á að skila læknisvottorði ef tilkynnt er um forföll í gegnum Innu.

 

Leiðbeiningar – Opnað fyrir aðgang aðstandenda nemenda eldri en 18 ára

1. Nem­andi skráir sig inn í Innu.

2. Smellt á mynd nem­andans efst á stik­unni er og valið „Ég.“ Í þeirri val­mynd eru per­sónu­upp­lýs­ingar nem­andans.

3. Opnaður er linkurinn „Aðstand­endur“

4. Með því að setja „Já“ í stað „Nei“ í „Aðgangur“ er aðstand­anda gefinn aðgangur.

 

 

 

 

Uppfært 27.08.2022
Áfangastjórn