fbpx
Menu

Samningsleið

Grunn­reglan er áfram sú að nem­endur sæki sitt vinnustaðnám undir handleiðslu meistara á vinnustað. Áfram er reiknað með að nem­endur sæki um náms­samning hjá iðnmeistara/​​fyr­ir­tæki/​​stofnun sem hafa leyfi til að taka nema á samning. Þannig getur neminn sjálfur haft áhrif á það hvar hann tekur vinnustaðanámið.

Í samn­ingsleið er gerður samn­ingur milli skóla, nem­anda, og iðnmeistara/​​​fyr­ir­tækis/​​​stofn­unar um vinnu­staða­nám nem­andans sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar.

Samn­ing­urinn sem er raf­rænn er gerður og und­ir­ritaður í fer­ilbók.

 

Vinnustaðanám erlendis

Nem­endur geta sótt um styrk til að taka starfsþjálfun/​​vinnustaðanám tengt náminu erlendis. Tækni­skólinn sækir um náms- og þjálf­un­ar­styrki og er í sam­starfi við skóla, stofn­anir og fyr­ir­tæki í mörgum löndum Evrópu í gegnum Era­smus+.

Styrk­irnir eru fyrir ferðakostnaði, gist­ingu og uppi­haldi. Tekið er við umsóknum allt skólaárið. Frekari upp­lýs­ingar um alþjóðlegt sam­starf má finna hér.

 

Skólaleið

Skólaleið er farin ef ekki fæst vinnustaður sem tekur nem­anda að sér sam­kvæmt iðnmeist­araleið. Skilyrði fyrir skólaleið er að fullreynt hafi verið koma nem­anda á iðnmeist­ara­samning.

Í skólaleið er gerður samn­ingur milli skóla, og iðnmeistara/​​​fyr­ir­tækis/​​​stofn­unar um vinnustaðanám nem­and­ans. Í skóla­samn­ingnum er kveðið á um inntak og fyr­ir­komulag þess vinnustaðanáms sem skal fara fram.

 

Spurt og svarað

Hér má sjá ýmis gagnleg svör varðandi vinnustaðanámið.

 


 

Uppfært 9. desember 2024