25. júní 2018
Tækniskólinn leitar að kennara í ljósmyndun
Umsækjandi þarf að geta kennt eftirfarandi greinar: ljós- og linsufræði, svart/hvíta filmuvinnu í myrkraherbergi og ljósmyndasögu.
Mögulegt er fyrir umsækjanda að geta kennt eitt eða fleiri fög af ofantöldum greinum.
Menntun: Ljósmyndari. Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi í viðkomandi kennslugrein, sbr. lög nr. 87/2008.
Upplýsingar gefur Kristín Þóra skólastjóri Upplýsingatækniskólans í ktk@tskoli.is
Umsóknarfrestur er til 2. júlí nk. Senda skal umsókn og ferilskrá til Guðrúnar Randalín aðstoðarskólameistara Tækniskólans á grl@tskoli.is
Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum verður svarað.