Menu

Innsýn í námið

Fjölbreytni - stórt og smátt

Störf rafiðnaðarmanna eru marg­vísleg. Allt frá því að leggja háspennu­línur til þess að setja saman örmerki fyrir dýr. Í raf­virkjun læra nem­endur um raflagnir, raf­mótora, stýr­ingar, reglugerðir og flest það sem lýtur að störfum raf­virkja.

Nem­endur sem koma inn eftir haustönn 2020 taka raf­virkja námið með fer­ilbók. Það hefst með grunn­námi rafiðna sem er 4 annir en síðan tekur við raf­virkja­braut sem er 2 annir.

Að loknu grunn­námi rafiðna getur nem­andi farið samn­ingsleið sem felur í sér að hann getur hafið störf hjá meistara. Meistari og nemi votta hæfniþrep sem áskilin eru í fer­il­bók­inni. Að lok­inni útskrift og fer­ilbók öðlast neminn rétt á að þreyta sveins­próf.

Einnig er hægt að fara skólaleið en hún felur í sér að skólinn skaffar pláss hjá meistara. Sá er þó mun­urinn að sjái skólinn um plássið er nem­andinn launa­laus.

Fer­il­bókin gildir í hámark 48 vikur.

Meira um námið

Braut­ar­lýsing

RK23 Rafvirkjun

Markmið raf­virkja­brautar er að búa nem­endur undir að geta starfað sjálf­stætt við almenn störf raf­virkja. Að loknu námi eiga nem­endur að þekkja og kunna að vinna með helsta tækja­búnaði sem notaður er af raf­virkjum, geta lagt raf­magn í bygg­ingar, unnið við stýr­ingar og raf­vélar. Nem­endur verða færir um að starfa við framleiðslu og dreif­ingu raf­orku. Raf­virki á hæfniþrepi 3 býr yfir hæfni til að vinna sjálf­stætt, veita ráðgjöf, gera ítar­legar tíma- og kostnaðaráætlanir sem og skila sinni vinnu í sam­ræmi við vænt­ingar. Hann hefur djúpan skilning á þeim búnaði, verk­ferlum og fræðum sem snúa að hans vinnu. Hann getur viðað að sér auk­inni þekk­ingu í sam­ræmi við þau verk­efni sem fyrir liggja með því að nýta sér miðla og upp­lýs­ingar sem snúa að faginu og notað hina auknu þekk­ingu við störf sín.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Inn­töku­skilyrði er grunnnám rafiðna. Þegar nem­andinn er búin með það nám getur hann sótt um nám í raf­virkjun.

 

Námsframvinda

Raf­virkjun er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími er þrjú ár með grunn­náminu, sam­tals sex annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 48 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Verk­efni nem­enda

Umsagnir

Shape
Shape

Sigurður Ragnar Jónsson, útskrifaður úr rafvirkjun

Algjör­lega frá­bært nám sem ég mæli svo sann­ar­lega með. Ég hef fullt af atvinnu­tæki­færum og finnst frá­bært að geta unnið sjálf­stætt.

Jose kom til Íslands árið 2011 og lærði íslensku og rafvirkjun í Tækniskólanum

Hæ Jose heiti ég og ólst upp á Spáni. Ég kom til Íslands árið 2011 og þá ákvað ég að fara á íslensku­braut. Að læra íslensku hjálpaði mér mikið að komast inn í sam­fé­lagið. Síðan ákvað ég að læra raf­virkjun, sem er frekar fjöl­breytt og skemmti­legt nám fyrir gott framtíðarstarf. Takk fyrir mig!

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.
Þess má geta að sú stefna hefur verið tekin upp hjá Fræðslu­skrif­stofu rafiðnaðarins að allt náms­efni í rafiðngreinum verði ókeypis nem­endum. Þetta er langt komið og sára­fáar bækur sem nem­endur þurfa að kaupa til námsins.
Náms­efni er að finna á rafbok.is.

Hvenær hefst kennsla?

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í Raf­virkjun fer fram á Skólavörðuholti og í Hafnarfirði.
Kennslustaðsetning áfanga er gefin til kynna með síðasta stafnum í áfanga­heitnu í stunda­töflu, þá stendur S fyrir Skólavörðuholt, H fyrir Háteigsveg og TH fyrir Hafn­ar­fjörð.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefnum.

Er nemendafélag?

Í Raf­tækni­skól­anum er starf­andi skóla­félag sem hefur það hlut­verk að tengja stjórn­endur skólans við nem­endur og koma með athuga­semdir og óskir um hluti sem betur mega fara. Jafn­framt er skóla­fé­lagið tengiliður stjórn­enda við nem­endur. Full­trúi skóla­fé­lagsins situr fundi með stjórn­endum reglu­lega sem og fagráði skólans.
Skóla­fé­lagið skipar nefndir til að sjá um félagslíf innan skólans og uppá­komur.
Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp félags­starf. Saman mynda skóla­félög innan Tækni­skólans Nemendasamband Tækniskólans NST.
Raftækniskólinn er með spjallsíðu (hóp) á Facebook.

Hvernig sæki ég um?

Sótt er um raf­rænt og sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!