fbpx
en
Menu
en

Tækniskólinn brautskráir nemendur tvisvar á ári, í maí og desember. Nemandi lýkur námi í skólanum þegar hann hefur lokið ákveðnum áföngum og einingafjölda eins og tilgreint er í brautarlýsingu. Við brautskráningu fær nemandi skírteini þar sem fram kemur hvaða námi hann hefur lokið.

 

Útskrift

Útskrift Tækni­skólans á haustönn 2024 fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, miðviku­daginn 18. des­ember.

Sjá nánari upplýsingar í eft­ir­far­andi frétt.

 

Skráning til útskriftar

Mik­il­vægt er að nem­andi sem stefnir á útskrift á þessari önn skrái sig til útskriftar hjá skóla­stjóra síns fag­skóla fyrir aug­lýstan frest sem má sjá hér í skóladagatali.

Skóla­stjóri yfirfer náms­feril nem­andans og skráir hann sem útskrift­ar­efni í Innu. Athugið að nem­andi þarf að láta skóla­stjóra vita ef hann er að taka aðra áfanga í öðrum skóla fyrir útskrift.

Skóla­stjóri staðfestir útskrift­ar­efni í Innu eftir að frestur er liðinn skv. VKL-204

 

Útskriftarhúfur

Tækni­skólinn, hefur í sam­vinnu við Formal Stúd­ents­húfur og P. Eyfeld boðið upp á ­húfu­mátun fyrir útskrift­ar­efni í aðdrag­anda hverrar útskriftar.

Eyfeld

StúdentshúfaFyr­ir­tækið býður upp á marg­vísleg tilboð fyrir verðandi útskrift­ar­nema í leit að réttu útskrift­ar­húf­unni.

Við hvetjum nem­endur til þess að hafa sam­band við P. Eyfeld fyrir nánari upp­lýs­ingar

Formal Stúdentshúfur

Hægt er að panta útskrift­ar­húfu á vefsíðu Formal auk þess að finna upp­lýs­ingar um útskriftarpakka sem eru í boði.

Nem­endur eru einnig vel­komnir á staðinn til að fá mæl­ingu og ganga frá pöntun.

Hér má finna myndband sem leiðbeinir þeim sem vilja sjá um mæl­ingar sjálfir og einnig er til kynningarbæklingur frá fyr­ir­tækinu.

Background text

Algengar spurn­ingar um útskrift

Hér má finna svör við algengum spurningum um útskrift skólans.

Er skylda að bera útskriftarhúfu á útskriftinni?

Nei, það er ekki skylda en mörgum finnst það hátíðlegt. Eitt árið voru nemendur í hljóðtækni með heyrnartól. Ykkar er valið!

Ég kemst ekki í útskriftarhúfumátun í skólanum. Get ég fengið að máta seinna?

Þau sem ekki hafa kost á að mæta í útskriftarhúfumátun þegar hún er í skólanum, geta sett sig í sam­band við P. Eyfeld eða Formal stúdentshúfur.

Hvernig á útskriftarhúfan mín að vera á litinn?

Þitt er valið en hefð hefur verið fyrir því að iðnnemar beri vínrauðar húfur, skipstjórn dökkbláar, vélstjórn svartar og þau sem útskrifast með stúdentspróf hvítar.

Hvaða húfur nota meistaranemar?

Vínrauðar húfur eins og aðrir iðnnemar.

Ég á húfu síðan ég útskrifaðist úr framhaldsskóla. Get ég notað sömu húfu en keypt nýjan koll?

Já það er hægt er að taka kolla af og setja nýjan koll á með öðrum lit.

Ef ég kemst ekki í útskriftina hvenær fæ ég brautskráningarskírteinið mitt?

Eftir útskrift má nálgast skírteini á skrifstofu skólans. Skrifstofan hefur síðar samband við þau sem eiga eftir að sækja skírteinið sitt.