fbpx
Menu

Innsýn í námið

Færni í vélarrúmi

Námið er til rétt­inda til að gegna stöðu yfir­vél­stjóra og 1. vél­stjóra á skipum með vélarafl minna en 3000 kW (STCW III/​3) og und­ir­vél­stjóra á skipum með ótak­markað vélarafl (að loknum sigl­inga­tíma). Þetta náms­stig er jafn­framt nám til stúd­ents­prófs og inni­felur B-réttindi og þar með heimild til að taka sveins­próf í vél­virkjun að lok­inni starfsþjálfun.

Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigs­vegi) en allar málmiðngreinar eru þó bara kenndar í Hafnarfirði (Flata­hrauni). Inn­ritað er í námið á haustönn. Lág­marks náms­tími í skóla er 8 annir.

Í náminu er veitt færni í notkun hvers konar vél-, raf- og stjórn­búnaðar sem unnið er með og þekking á lögum og reglum sem vél­stjórar vinna eftir. Eftir að hafa lokið námi í vél­stjórn verður þú fær um að hafa stjórn á og viðhalda vél­búnaði skipa eða framleiðslu­fyr­ir­tækja.

Mögu­lega getur í ein­stökum áföngum verið nám með vinnu (dreifnám – fjarnám með staðlotum) í boði.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagsíðu.

Braut­ar­lýsing

VC20 Vélstjórn C - vélstjórnarréttindi (3000 kW sbr. STCW A-III/3)

Vél­stjórn­arnám skiptist í meg­in­atriðum í sex náms­stig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum upp­fylltum, rétt til að fá útgefið skír­teini til starfa sem vél­stjóri. Þessi braut er til fimm fyrstu náms­stig­anna. Þriðja náms­stig (rétt­indi A) er til rétt­inda til að gegna stöðu vélavarðar og vél­stjóra á skipum með vélarafl 750 kW og minna. Innifalin eru tvö fyrstu náms­stigin, þ.e. náms­stig eitt – vél­gæslu­rétt­indi <750 kW og <12 m lengd á skipi, og náms­stig tvö – vél­gæslu­rétt­indi <750 kW og <24 m lengd á skipi. Fjórða náms­stig (rétt­indi B) er til rétt­inda til að gegna stöðu yfir­vél­stjóra og 1. vél­stjóra á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og und­ir­vél­stjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Þetta náms­stig er jafn­framt nám til prófs í vél­virkjun. Í náminu öðlast nem­endur einnig viðeig­andi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vél­stjórn­ar­störfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitu­fyr­ir­tækja og í iðnaði. Fimmta náms­stig (rétt­indi C) er til rétt­inda til að gegna stöðu yfir­vél­stjóra og 1. vél­stjóra á skipum með vélarafl minna en 3000 kW (STCW III/​3) og und­ir­vél­stjóra á skipum með ótak­markað vélarafl. Þetta náms­stig er jafn­framt nám til stúd­ents­prófs.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Náms­upphaf brautar miðast við að nem­andi hafi náð hæfniviðmiðum grunn­skóla í kjarna­fögum (B í íslensku, ensku og stærðfræði). Sé það ekki býðst nem­endum að hefja nám á grunn­náms­braut málm- og vél­tækni­greina í Hafnarfirði (Flata­hrauni) til að ná þeirri hæfni ásamt því að stunda nám í fyrstu áföngum braut­ar­innar samhliða.

 

Mat á námi:

Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna
Sérreglur um námsmat í tilteknum áföngum í skipstjórn
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólumv

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið atvinnu­skír­teini sem ýmist vélavörður, und­ir­vél­stjóri, 1. vél­stjóri eða yfir­vél­stjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig (C) geta rétt­indin verið vélavörður og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafl að 750 kW, 1. vél­stjóri og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafli að 1500 kW, und­ir­vél­stjóri, 1. vél­stjóri og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafl að 3000 kW, eða und­ir­vél­stjóri á skipi með ótak­markaðri vél­ar­stærð.

Vél­virkjun er samþætt vél­stjórn­ar­námi til B-rétt­inda og að lok­inni starfsþjálfun getur þú tekið sveins­próf í iðngrein­inni. Náms­braut­inni lýkur með stúd­ents­prófi.

Námið full­nægir þeim kröfum sem gerðar eru til bók­náms til að öðlast skír­teini STCW III/​3 sam­kvæmt alþjóðasamþykkt.

Umsagnir

Shape
Shape

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf ég að eiga öryggisfatnað?

Þú þarft að koma með eiginn örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Vél­stjórar og vélfræðingar starfa m.a. í verksmiðjum, á skipum, í orku­verum og þar sem gerðar eru kröfur um víðtæka þekk­ingu á vél- og tækni­búnaði. Vél­stjórn­arnám veitir rétt­indi til atvinnu um allan heim á skipum af öllum stærðum og gerðum, við fiskveiðar, flutn­inga eða á stærstu farþega­skipum.

Hvar er vélstjórn kennd?

Dagnáms­kennsla í Vél­tækni­skól­anum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi og í Hafnarfirði (Flata­hrauni og Gjótu­hrauni). Efri áfangar í náminu eru ein­göngu kenndir á Háteigs­vegi.

Hvað kostar nám í vélstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans. Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skóla­félag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í vél­stjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er svirpostur@gmail.com.

Saman mynda skóla­félög í Tækni­skól­anum Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og í ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Sjá nánar hér.

Nem­endur sem lokið hafa stúd­ents­prófi eru líka boðnir vel­komnir í þetta nám og getur það stytt náms­tímann um allt að þriðjung.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára staðfesta starfs­reynslu í vél­stjórn­ar­greinum geta farið í raun­færnimat. Raun­færnimat er unnið í sam­starfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.

Nokkrar greinar eru metnar í raun­færni­mati og getur það stytt náms­tímann eða auðveldað nem­endum að taka það sem vantar upp á rétt­indin með vinnu. Sjá nánar hér.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!