fbpx
Menu

Innsýn í námið

Þú öðlast þekk­ingu, færni og hæfni sem krafist er til sveina í grein­inni til að takast á við þau verk­efni sem unnin eru á renni­verkstæðum s.s. hönnun og nýsmíði íhluta til notk­unar í tækjum og vélum.

Námið er verk­efna­tengt og bæði bóknám og verk­námið er kennt í Hafnarfirði. Nem­endur eru teknir inn í skólann bæði á haustönn og vorönn, og áfanga­framboð er miðað við að nem­endur hefji nám að hausti.

Nokkrir áfangar í málm- og vél­tækni­námi eru í boði sem nám með vinnu, bæði bók­legir og verk­legir áfangar (með staðlotum).

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Braut­ar­lýsing

TH-RS23 Rennismíði

Renn­ismiður er lög­verndað starfs­heiti og renn­ismíði er lög­gilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nem­endum kleift að takast á við þau viðfangs­efni sem renn­ismiðir inna af hendi, þ.e. smíða hluti af öllu tagi úr málmum og plastefnum, bæði til fjölda- og raðframleiðslu og ein­staka íhluti til viðhalds og viðgerða. Námið sam­an­stendur af bók­legu og verk­legu námi í skóla ásamt starfsþjálfun í fyr­ir­tækjum. Námið tekur að lág­marki þrjú heil ár og við lok þess staðfesta nem­endur kunn­áttu sína og færni í sveins­prófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inn­göngu í nám til iðnmeist­ara­prófs.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Miðað er við að nem­endur hafi náð lág­marks­ein­kunn C úr grunn­skóla í íslensku, ensku og stærðfræði. Nem­endum sem þess þurfa er boðið upp á und­ir­bún­ingsnám málm- og vél­tækni­greina á meðan lág­marks­ár­angri í kjarna­greinum er náð.

 

Námsframvinda

Renn­ismíði er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími eru sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 60 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Umsagnir

Shape
Shape

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nem­endur sem hefja nám í Vél­tækni­skól­anum verða að koma með eigin örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr rennismíði?

Renn­ismiðir starfa gjarnan á sérhæfðum renn­ismíðaverkstæðum sem jafnan eru annað tveggja deildir innan málm- og vél­tæknifyr­ir­tækja eða sér­stök þjón­ustu- og smíðafyr­ir­tæki.

Hvernig kemst ég á starfssamning?

IÐAN fræðslusetur sér um náms­samn­inga fyrir málm- og vél­tækni­greinar. Sjá einnig næsta skref um störf í grein­inni.

Ég er með stúdentspróf, fæ ég það metið og hvað er námið þá langt?

Þú færð almennar greinar metnar og því styttist námið um allt að fjórðung.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!