fbpx
Menu

Innsýn í námið

Rafeindabúnaður og fjarskipti

Raf­einda­virkjar starfa víða og tengist starfið aðallega raf­einda­búnaði hvers konar m.a. sjálf­virkni og örtölvum en einnig viðgerðum á tækjum eins og tölvum, hljóm­tækjum, flat­skjám, öryggis­kerfum, lækn­inga­tækjum, sím­kerfum og radar­búnað. Algengt er að raf­einda­virkjar komið að hönnun og nýsköpun á raf­einda­búnaði.

Í náminu lærir þú um raf­einda­tækni, raf­einda­vélfræði, for­ritun og fjar­skipta­tækni svo eitthvað sé nefnt.

Meðalnáms­tími er fjögur ár að meðtöldu námi í grunn­námi rafiðna, sam­tals sjö annir í skóla og 30 vikna starfsþjálfun.

Braut­ar­lýsing

RE23 Rafeindavirkjun

Markmið raf­einda­virkja­brautar er að búa nem­endur undir að geta starfað sjálf­stætt við almenn störf raf­einda­virkja. Að loknu námi eiga nem­endur að þekkja og kunna að vinna með helsta tækja­búnað sem notaður er af raf­einda­virkjum við viðgerðir á raf­einda­búnaði, fjar­skipta­lögnum og upp­setn­ingu búnaðar hvort heldur sem er fyrir fjar­skipti eða vél­búnað.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Klára þarf grunnnám rafiðna áður en byrjað er í raf­einda­virkjun.

 

Námsframvinda

Raf­einda­virkjun er þriggja anna nám ofan á grunn­námið og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 30 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

 

Að loknu námi

Raf­einda­virkjun er lög­gilt iðngrein. Náminu lýkur með sveins­prófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inn­göngu í nám til iðnmeist­ara­prófs.

Nem­endur útskrifast að loknu sveins­prófi og við taka 30 vikur á vinnu­markaði svo hægt sé að afhenda nem­anda sveins­bréfið.

 

Verk­efni nem­enda

Leikjafjarstýring

Leikjafjarstýring

Rafræn gervihönd

Davíð Mark kynnir gervihönd

Læsingatækni á verðmætaskáp

Læsingatækni á verðmætaskáp

Tölvustýrður spennugjafi

Tölvustýrður spennugjafi

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.
Þess má geta að sú stefna hefur verið tekin upp hjá Fræðslu­skrif­stofu rafiðnaðarins að allt náms­efni í rafiðngreinum verði ókeypis nem­endum. Þetta er langt komið og sára­fáar bækur sem nem­endur þurfa að kaupa til námsins.
Náms­efni er að finna á rafbok.is.

Hvenær hefst kennsla?

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í Raf­einda­virkjun fer fram Hafnarfirði.

Kennslustaðsetning áfanga er gefin til kynna með síðasta stafnum í áfanga­heitnu í stunda­töflu, þá stendur S fyrir Skólavörðuholt, H fyrir Háteigsveg og TH fyrir Hafn­ar­fjörð.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefnum.

Er nemendafélag?

Í Raf­tækni­skól­anum er starf­andi skóla­félag sem hefur það hlut­verk að tengja stjórn­endur skólans við nem­endur og koma með athuga­semdir og óskir um hluti sem betur mega fara. Jafn­framt er skóla­fé­lagið tengiliður stjórn­enda við nem­endur. Full­trúi skóla­fé­lagsins situr fundi með stjórn­endum reglu­lega sem og fagráði skólans.
Skóla­fé­lagið skipar nefndir til að sjá um félagslíf innan skólans og uppá­komur.
Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp félags­starf. Saman mynda skóla­félög innan Tækni­skólans Nemendasamband Tækniskólans NST.
Raftækniskólinn er með spjallsíðu (hóp) á Facebook.

Hvernig sæki ég um?

Sótt er um raf­rænt. Umsókn­ar­hnappur er hér á síðunni og upplýsingar um innritun á vefsíðu.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!