fbpx
Menu

Innsýn í námið

Aukin þörf fyrir fólk með þessa menntun

Raf­véla­virkjun tekur á raf­mó­torum, raf­vél­a­stýr­ingum og skynj­ara­tækni en einnig er fjallað um vara­afls­búnað og raf­knúin far­ar­tæki.

Námið veitir innsýn inn í þá tækni sem notuð er í iðnaði og í rafvæðingu far­ar­tækja.

Námið er alls 5 áfangar eða 25 ein­ingar sem bætast ofan á raf­virkj­anám en sveinspróf í rafvirkjun er inn­töku­skilyrði. Að loknu námi þarf nem­andi að taka 30 vikur hjá meistara og má þá þreyta sveins­próf.

 

Braut­ar­lýsing

RV20 Rafvélavirkjun

Nem­endur sem hyggjast inn­ritast í raf­véla­virkjun þurfa að hafa lokið sveins­prófi í raf­virkjun.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Inn­töku­skilyrði er að nem­andi hafi lokið sveins­prófi í rafvirkjun.

 

Námsframvinda

Raf­véla­virkjun er lög­gilt iðngrein. Námið í raf­véla­virkjun er alls 5 áfangar eða 25 ein­ingar sem bætast ofan á raf­virkj­a­námið (2 annir) og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 30 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að námi loknu

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Þess má geta að sú stefna hefur verið tekin upp hjá Fræðslu­skrif­stofu rafiðnaðarins að allt náms­efni í rafiðngreinum verði ókeypis nem­endum. Þetta er langt komið og sára­fáar bækur sem nem­endur þurfa að kaupa til námsins.

Náms­efni er að finna á rafbok.is.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í Raf­véla­virkjun fer fram á Skólavörðuholti.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefnum.

Er nemendafélag?

Í Raf­tækni­skól­anum er starf­andi skóla­félag sem hefur það hlut­verk að tengja stjórn­endur skólans við nem­endur og koma með athuga­semdir og óskir um hluti sem betur mega fara. Jafn­framt er skóla­fé­lagið tengiliður stjórn­enda við nem­endur. Full­trúi skóla­fé­lagsins situr fundi með stjórn­endum reglu­lega sem og fagráði skólans.
Skóla­fé­lagið skipar nefndir til að sjá um félagslíf innan skólans og uppá­komur.
Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp félags­starf. Saman mynda skóla­félög innan Tækni­skólans Nemendasamband Tækniskólans NST.
Raftækniskólinn er með spjallsíðu (hóp) á Facebook.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!