fbpx
Menu

Innsýn í námið

Prentari gefur lífinu lit

Nám í prentun er marg­vís­legt og læra nem­endur að taka við verki á prent­plötum, mynda­móti eða í tölvu­tæku formi, stilla verkið og papp­írinn inn í prentvél, stilla lita­áferð og prenta verkið, tryggja prentgæði og sjá um rekstur prentvél­búnaðar.

Í náminu eru kenndar mis­mun­andi prentaðferðir, t.d. off­set­prentun, sta­fræn prentun, hæðarprentun og flexóprentun. Prentari ákveður hvaða prentaðferðir eru notaðar og er í miklum sam­skiptum við annað fag­fólk í faginu.

Braut­ar­lýsing

PRE23 Prentiðn

Meg­in­markmið námsins er að útskrifa nem­endur með sér­tæka þekk­ingu á öllum þáttum prent­unar og þekk­ingu, leikni og hæfni til að vinna við prentun, dag­lega umsjón og rekstur prentvéla í stórum og smáum prent­fyr­ir­tækjum. Nem­endur hafi til­einkað sér sér­tækar aðferðir og verklag við prentun og geti beitt þekk­ingu sinni og verkkunn­áttu á sjálfstæðan hátt án tilsagnar, við stýr­ingu prentvéla og annars búnaðar sem notaður er við prentvinnslu. Nem­endur útskrifast með próf­skír­teini sem vottar að þeir hafi lokið burt­farar­prófi frá fram­halds­skóla af Upp­lýs­inga- og fjölmiðlabraut, sér­námi í prentun.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Fyrst þarf að klára grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Þegar því námi er lokið þá geta nem­endur sótt um nám í  prentun, sem er sérsvið.

 

Námsframvinda

Námið er sam­tals fjórar annir í skóla með grunn­náminu og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 48 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Prentiðn er lög­gilt iðngrein.

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Nánari upp­lýs­ingar

Í grunn­náminu þurfa nem­endur að nota Adobe for­rit­un­ar­pakkann og er hægt að kaupa nem­enda­leyfi á bóka­safni skólans.

 

 

Það er hægt að klára stúd­ents­próf eftir að námi í skól­anum lýkur eða búa sig undir nám á háskóla­stigi með öðrum hætti.

 

 

FAQ

Spurt og svarað

Er öruggt að ég komist í starfsþjálfun / á samning til að klára námið?

Það er erfitt að fullyrða um að nem­endur komist í starfsþjálfun eftir að námi í skól­anum lýkur. Það fer allt eftir eft­ir­spurn hverju sinni.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í viðburða- og skóladagatali hér á vefsíðu Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í prentun fer fram Sjó­manna­skóla­húsinu á Háteigs­vegi. En einnig fara nem­endur á sérsviðinu út í fyr­ir­tæki.

Er mætingarskylda?

Já, nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefsíðu Tækni­skólans.

Er nemendafélag?

Upp­lýs­ingar um félagslíf og nem­enda­félag.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!