fbpx
Menu

Innsýn í námið

Meiri réttindi

Í náminu öðlast þú skip­stjórn­ar­rétt­indi á fiski­skipum styttri en 45 metrar í inn­an­lands­sigl­ingum og á flutn­inga- og farþega­skipum að 500 brútt­ótonn í strand­sigl­ingum (STCW II/​3) (að loknum sigl­inga­tíma).

Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigs­vegi). Inn­ritun inn námið er opin bæði á haustönn og vorönn. Lág­marks náms­tími í skóla er 4 annir. Hægt er að bæta við áföngum til stúd­ents­prófs (tvær annir í viðbót).

Skólinn býður fyrsta flokks aðstöðu fyrir nem­endur til bók­legrar og verk­legrar kennslu. Námið hentar nem­endum af öllum aldri og er kennt bæði í dagnámi og dreif­námi. Ein­göngu er opið fyrir umsóknir í dagnám fyrir haustönn en opið er fyrir umsóknir í dreifnám báðar annir. Allir áfangar braut­ar­innar eru í boði í dreifnámi.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Braut­ar­lýs­ingar

SB20 Skipstjórn B - skip undir 45m, 500BT sbr. STCW II-3

Skip­stjórn­arnám skiptist í meg­in­atriðum í sjö náms­stig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum upp­fylltum, rétt til að fá útgefið skír­teini til starfa sem skip­stjórn­armaður. Þetta náms­stig (fjórða) er til rétt­inda til að gegna stöðu skip­stjóra/​yfir­stýri­manns á skipum sem eru 45 metrar að skrán­ing­ar­lengd eða minni í inn­an­lands­sigl­ingum og und­ir­stýri­manns á fiski­skipum af ótak­markaðri stærð og farsviði. Einnig sem skip­stjóri og stýrimaður á farþega- og flutn­inga­skipum sem eru minni en 500 brútt­ótonn í strand­sigl­ingum (STCW II/​3).

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Náms­upphaf brautar miðast við að nem­andi hafi náð hæfniviðmiðum grunn­skóla í kjarna­fögum (B í íslensku, ensku og stærðfræði). Sé það ekki býðst nem­endum fornám í þessum greinum til að ná þeirri hæfni ásamt því að stunda nám í fyrstu áföngum braut­ar­innar eftir því sem hægt er.

Ef þú hefur annað nám eða starfs­reynslu að baki þá má vera að hægt sé að meta eitthvað af því og stytta þannig námið sem framundan er. Hér má sjá nánari upplýsingar um mat á fyrra námi.

 

Mat á námi:

Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna
Sérreglur um námsmat í tilteknum áföngum í skipstjórn
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólum

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið skír­teini sem ýmist stýrimaður eða skip­stjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig geta rétt­indin verið yfir­stýrimaður/​stýrimaður og skip­stjóri á skipum styttri en 45 m að skrán­ing­ar­lengd í inn­an­lands­sigl­ingum, og und­ir­stýrimaður á fiski­skipum og öðrum skipum að ótak­markaðri stærð og farsviði.

Námið full­nægir þeim kröfum sem gerðar eru til bók­náms til að öðlast skír­teini STCW II/​3 (500 BT) sam­kvæmt alþjóðasamþykkt.

Hægt er að fara stúd­entsleið samhliða náminu og klára stúd­ents­próf.

Verk­efni nem­enda

FAQ

Spurt og svarað

Er hægt að taka stúdentspróf með náminu?

Já, þú getur valið áfanga í stúd­entsleið og lokið stúd­ents­prófi á einni eða tveimur önnum til viðbótar.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í skip­stjórn fer fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi.

Þarf ég að vera með verkfæri eða annan útbúnað?

Nem­endur sem hefja nám í Skip­stjórn­ar­skól­anum verða að koma með eigin örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu vél­tækni­námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Er mætingarskylda?

Hvað kostar nám í skipstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans. Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skóla­félag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í skip­stjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er styrimennstjorn@gmail.com.

Saman mynda nem­enda­félög í Tækni­skól­anum – Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Hér má lesa nánar um félagslíf Tækniskólans.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Sjá nánar hér.

Nem­endur sem lokið hafa stúd­ents­prófi eru líka boðnir vel­komnir í þetta nám og getur það stytt náms­tímann um allt að þriðjung.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfs­reynslu í faginu geta sótt um að fara í raun­færnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögu­lega C stigi). Sjá nánar hér.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!