fbpx
Menu

Innsýn í námið

For­námið á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut byggir á skap­andi vinnu og aðferðum í hönnun.

Ef að þú vilt und­irbúa þig fyrir skap­andi nám á háskóla­stigi og ert með stúd­ents­próf eða sam­bæri­legt nám þá er þetta nám fyrir þig. Ef að þú ert að koma beint úr grunn­skóla þá er gott að skoða hönnunar- og nýsköpunarbraut – stúdentspróf.

Áhersla er á vinnu með sjálf­bærni, nýsköpun og per­sónu­lega sýn í verk­efna­vinnu. Þú lærir að vinna með sjón­ræna þætti eins og teikn­ingu, liti, form, rann­sókn á umhverfi og sam­fé­lagi, hug­mynda­vinnu og lausna­leit.

Nem­endur vinna fer­il­möppu á síðustu önn námsins.

Braut­ar­lýsing

HNÝH21 - Hönnunar- og nýsköpunarbraut, fornám

Brautin er eins árs fornám fyrir nem­endur með námslok á 3. þrepi, stúd­ents­próf eða sam­bæri­legt. Námið byggir á vinnu með sjón­ræna þætti og aðferðir sem byggja á hönn­un­ar­ferli í lausna­leit.

For­námið er fullt dagnám í tvær annir og ekki er gert ráð fyrir að námið taki lengri tíma.

Inn­töku­skilyrði: Til að hefja nám á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut for­námi þarf að hafa lokið stúd­ents­prófi, námi á 3. þrepi eða sam­bæri­legu námi. Námið fer ekki af stað nema lág­marks­fjöldi nýrra umsókna náist.

Sjá námsskipulag og nánar um sam­eig­in­lega áfanga hönnunar- og nýsköpunarbraut – stúd­entsleið.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Til að hefja nám í for­námi hönn­unar- og nýsköp­un­ar­brautar þarf að hafa lokið stúd­ents­prófi eða sam­bæri­legu námi.

Horft er til frammistöðu og ástund­unar í fyrra námi við inn­töku nem­enda og umsækj­endur eru beðnir um að láta stutt kynn­ing­ar­bréf fylgja sem lýsir því af hverju viðkom­andi sækir um sem viðhengi með umsókn.

Tuttugu nem­endur eru teknir inn á brautina á haustin.

Að loknu námi

Að námi loknu ættir þú að vera með góðan und­ir­búning fyrir nám sem reynir á skap­andi vinnu, lausna­leit og frumkvæði í ein­stak­lings­vinnu sem og sam­vinnu.

Nem­endur útbúa fer­il­möppu og hafa mögu­leika á að sækja um lista­há­skóla hér heima og erlendis í arki­tektúr, hönnun og ýmsum öðrum skap­andi greinum.

Námsskipulag brautar

Verk­efni nem­enda

Erasmus+ styrkur veitir góð tækifæri

Námsdvöl í hönnunarskóla í Danmörku

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun og nýsköpun á vorsýningu

Fjölbreytt verkefni á vorsýningu

Umsagnir

Shape
Shape

Mjög ánægð með námið

„Ég ákvað að fara í þetta nám eftir stúd­ents­próf úr Versló, því ég setti stefnuna á arki­tektúr og þess vegna var for­námið á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut góður grunnur fyrir háskólanám hér á Íslandi og erlendis“, segir Sól Elías­dóttir.

FAQ

Spurt og svarað

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Er hægt að hefja nám bæði á haustin og vorin?

Nei, ein­göngu er hægt að byrja á haustin.

Er fornámið kennt í dagskóla?

Já, námið er fullt dag­skólanám í eitt ár eða tvær annir, haust- og vorönn.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækni­skólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut fer fram á Skólavörðuholti.

Nánari upp­lýs­ingar um staðsetn­ingu og húsnæði Tækni­skólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Er hægt að vera í hluta af náminu?

Nei, ein­göngu er hægt að vera í fullu námi.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!