fbpx
Menu

Innsýn í námið

Í hús­gagnasmíði eru viðfangs­efni af ýmsum toga stór eða lítil hús­gögn og heilu inn­rétt­ing­arnar. Í náminu nærðu þér leikni í aðferðum og verklagi á sérsviði braut­ar­innar. Kynnist fjöl­breyttri sérsmíði, viðgerðum og nýsmíði á hús­gögnum.

Farið er í grein­ingu á mis­mun­andi gerð og bygg­ingu og hvernig ber að standa að smíði eða viðgerðum með hliðsjón af efn­is­notkun og vinnuaðferðum. Námið veitir þér sér­tæka þekk­ingu á sviðum grein­ar­innar.

Boðið er upp á nokkra áfanga í dreifnámi.

Braut­ar­lýsing

HS23 Húsgagnasmíði

Hús­gagnasmiður býr yfir hæfni til að vinna sjálf­stætt og leiðbeina öðrum, þekkir ábyrgð sína, siðferðilega stöðu og getur lagt mat á eigin vinnu. Hús­gagnasmiður þekkir helstu eig­in­leika og verkan efna og getur valið efni eftir verk­efnum. Hús­gagnasmiður getur hannað og smíðað öll helstu hús­gögn, lagt mat á viðhald og viðgerðir hús­gagna og þekkir og getur nýtt sér gamlar vinnuaðferðir, getur smíðað og sett upp og viðhaldið hús­hlutum. Hann getur notað yfirborðsefni s.s. lökk og litar­efni og þekkir grunn­atriði lita- og formfræði og helstu stíl­tímabil. Hús­gagnasmíði er lög­gild iðngrein.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Inn­töku­skilyrði er grunnnám bygginga‐ og mannvirkjagreina. Þegar nem­andinn er búin með það nám getur hann sótt um nám í hús­gagnasmíði. Umsækj­endur eldri en 20 ára eða með stúd­ents­próf geta inn­ritað sig beint á brautina.

 

Námsframvinda

Hús­gagnasmíði er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími er fjögur ár með grunn­náminu, sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 72 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

 

 

Verk­efni nem­enda

Starfsnám í húsgagnasmíði

Námssamningur í París

Tækniteiknarar í Danmörku

Tækniteiknarar í Danmörku

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun og nýsköpun á vorsýningu

Fjölbreytt verkefni á vorsýningu

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækni­skólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í hús­gagnasmíði fer fram á Skólavörðuholti og Hafnarfirði, Flata­hrauni 12.

Nánari upp­lýs­ingar um staðsetn­ingu og húsnæði Tækni­skólans.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Nem­endur sem hefja nám í bygg­inga- og mann­virkja­greinum verða að koma með eigin örygg­is­skófatnað, hlífðargler­augu og heyrn­ar­hlífar sem hann skal ávallt nota í verk­legri aðstöðu Bygg­inga­tækni­skólans.
Nem­endur sem lokið hafa grunn­á­föngum eiga að verða sér út um neðangreind verk­færi og mæta með þau í verk­lega áfanga. Þessi verk­færi er hægt að kaupa í flestum bygg­inga­vöru­versl­unum og er áætlað verð frá 25.000–40.000 kr.

• Hefill no. 4
• Spor­járna­sett 6stk.
• Rissmát tré/​brons mm
• Sniðmát
• Vinkill 150mm
• Klauf­hamar 16oz
• Borasett 10stk.
• Úrsnari
• Bita­sett torx
• Tommu­stokkur 1m í milli­metrum.
• Verk­færa­kassi
• Heyrn­ar­hlífar

Nánari upp­lýs­ingar um verk­færi fá nem­endur hjá kenn­urum í verk­legum greinum.

Einnig er ætlast til að nem­endur mæti í vinnufatnaði í verk­legar greinar. Tækni­skólinn tekur ekki ábyrgð á skemmdum á fatnaði.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Get ég tekið stúdentspróf af brautinni?

Nem­andi sem er í starfs­námi á fram­halds­skóla­stigi á kost á viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi. Slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!